Forsíða/ Fréttir/ Nýskráning/ Vörukarfa / Um okkur/ Hafa samband
 

SKILMÁLAR

Skilmálar

Nafn fyrirtækisins: Itis ehf., kt. 621110-1360 rekur vefinn itis.is, parts4u.is og volvovarahlutir.is hér eftir nefnt Itis í skilmálum þessum.

Innsláttarvillur: Itis reynir eftir fremsta megni að tryggja að réttar upplýsingar séu á vefsíðu og vefverslun Itis. Engin ábyrgð er tekin á innsláttarvillum, myndbrengli eða röngum og úreltum upplýsingum. Reynist pöntuð vara vera ófáanleg áskilja Itis sér rétt til að hætta við pöntunina eða útvega sambærilega vöru.

Verð: Verð á vörum á vefsíðu Itis er staðgreiðsluverð með 25.5 % virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Verð geta breyst án fyrirvara

Afgreiðslufrestur: Í flestum tilfellum er afgreiðslutími pantana einn til fjórir sólarhringar en getur í sumum tilfellum tekið fleiri daga, ef sérpanta þarf vöru að utan getur það tekið allt að fimmtán daga.

Afhending vöru:
Afhending vöru fer fram með Íslandspósti eða öðrum flutningarfyrirtækjum ef annað er óskað.

Ábyrgð: Ábyrgð nær til framleiðslugalla og efnisgalla á vörum sem seldar eru hjá Itis. Ábyrgðartími er í tvö ár frá útgáfudegi reiknings sem jafnframt gildir sem ábyrgðaskírteini. Itis ber á engan hátt ábyrgð á slæmri eða rangri meðhöndlun vörunnar eða skemmdum í flutningi. Itis er ekki ábyrgt fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðra vöru. Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Itis eða öðru verkstæði sem Itis samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Vara fellur úr ábyrgð ef annar en Itis gerir við vöru eða gerir tilraun til viðgerðar.

Skilaréttur:
Skilaréttur er í 15 daga frá útgáfudegi reiknings á vörum sem eru pantaðar í gegnum vefverslun Itis. Vöru sem er skilað skal vera í upprunalegri pakkningu og ástandi, órofið innsigli og allir fylgihlutir með, rafmagnsvörum er ekki hægt að skila. Itis áskilur sér rétt til að yfirfara vöru áður en hún er tekin til baka.

Eignaréttarfyrirvari:
Hið selda er eign Itis þar til verð er að fullu greitt.

Vörukarfa

Fjöldi: 0

Samtals verð: 0 ISK

Skoða körfu

Áhugavert

© Allur réttur áskilinn www.notando.is